Nýr verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness - Heklan
#

Fréttir

Heklan

Nýr verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness

Eyþór Sæmundsson

Eyþór Sæmundsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness sem verkefnastjóri miðlunar og markaðssetningar.

Eyþór er uppalinn Njarðvíkingur með B.A. próf í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur starfað sem blaðamaður frá árinu 2011, lengst af hjá héraðsmiðlinum Víkurfréttum á Suðurnesjum með viðkomu á RÚV á Akureyri.

Eyþór mun sjá um samfélagsmiðla og vefsíður Markaðsstofu auk þess sem hann mun markaðssetja svæðið fyrir fjölmiðla og ferðamenn.