Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknarsjóð 2026

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.

Umsóknarfrestur er til hádegis, 4. mars 2026 (til kl. 12:00). Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.

Í umsóknum skal koma fram greinargóð lýsing á rannsókn, markmiðum, ávinningi, nýnæmi og hvernig rannsóknin styður við tilgang sjóðsins. Gera þarf grein fyrir tengslum rannsóknar við byggðaþróun og eftir atvikum hvernig rannsókn fellur að áherslum byggðaáætlunar 2022-2036.

Eftirfarandi þættir hafa vægi við mat á umsóknum:

  • Hvernig verkefnið styður við tilgang sjóðsins og tengist byggðaþróun.
  • Vísindalegt og hagnýtt gildi verkefnis.
  • Nýnæmi verkefnis.
  • Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti).

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.  Sjá nánar:

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir

hannadora@byggdastofnun.is / sími 455 5454

Frekari upplýsingar um Byggðarannsóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar. Styrkir úr Byggðarannsóknasjóði hafa verið veittir frá árinu 2015. Alls hafa 48 verkefni hlotið styrk á árunum 2015-2025 að heildarfjárhæð 123,8 m.kr. Á árinu 2025 fengu eftirfarandi fimm verkefni styrk:

  • Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga?  Styrkþegi er Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst, Vífill Karlsson.
  • Tvíeggjað sverð, leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins.  Styrkþegi er Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Hjalti Jóhannesson. 
  • Skipulag sjálfbærrar landbúnaðarframleiðslu á Íslandi.  Styrkþegi: Salvör Jónsdóttir, Háskóla Íslands.
  • Samvinna og samræming áfangastaðastofa og sveitarfélaga um sjálfbæra ferðamálaþróun.  Styrkþegar: Anna Karlsdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir, báðar við Háskóla Íslands.
  • Erlendar fjárfestingar í jörðum á Íslandi. Sýn á áhrif af þróun byggða og samheldni íbúa.  Styrkþegar: Anna Karlsdóttir og Magnfríður Júlíusdóttir, báðar við Háskóla Íslands.

Byggðarannsóknasjóður hefur það að markmiði að veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bætt þekkingargrunn sem nýtist við stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. 

Skildu eftir athugasemd

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *