Nýsköpunarverkefnin Kraftý Cafe og Hólmur Heilsa/Steinunn Saunagus eru meðal
fjórtán verkefna sem valin hafa verið til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026. Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum og smáfyrirtækjum á landsbyggðinni og er Heklan og SSS meðal samstarfsaðila verkefnisins.
Verkefnin af Suðurnesjum eru ólíkum toga. Að baki Kraftý Café standa Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir. Verkefnið felst í uppsetningu á skapandi kaffihúi sem eflir samfélag og menningarlíf. Hólmur Heilsa/Steinunn saunagus er heilsu og listasetur á Suðurnesjum með áherslu á sköpun, jafnvægi og tengsl við náttúruna. Þar að baki standa Unnur Svava Sverrisdóttir, Jóhannes Harðarson og Soffía Kristjánsdóttir.
Alls taka fjórtán verkefni víðs vegar af landinu þátt í hraðlinum í ár. Þau spanna fjölbreytt svið, meðal annars matvælaframleiðslu, heilsueflingu, tækni, ferðaþjónustu og skapandi greinar.

Kraftý Café
Fræðsla, ráðgjöf og tengslamyndun
Startup Landið er sjö vikna viðskiptahraðall sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun, atvinnulíf og verðmætasköpun á landsbyggðinni. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu, sérfræðiráðgjöf og tengslaneti sem nýtist þeim við að þróa hugmyndir sínar og byggja upp sjálfbæran rekstur.
Dagana 25. og 26. september komu þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar saman í Borgarnesi á tveggja daga vinnustofu þar sem áhersla var lögð á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun verkefnanna.
Á næstu vikum vinna teymin meðal annars að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu með aðstoð reyndra leiðbeinenda.
Hraðlinum lýkur með sameiginlegum lokaviðburði á Selfossi 6. nóvember þar sem þátttakendur kynna verkefni sín.

Hólmur Heilsa/Steinunn saunagus
Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga víðs vegar um landið, þar á meðal Austurbrúar.

