Svanni framlengdur

Samþykkt hefur verið að framlengja starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna um fjögur ár eða til ársins 2019.

Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur að þessu sinni til 15.mars en sótt er um á nýjum vef verkefnisins.

Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna geta fengið ábyrgðartryggingu/lán og gerð er krafa um að í verkefninu felist atvinnusköpun.

Hér má sjá viðtal við formann sjóðsins, Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur: