Samfélagsstyrkir Landsbankans 🏦

Samfélagsstyrkir til að styðja við verkefni á ýmsum svipum þar á meðal rannsókna og vísinda og á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Umsóknarfrestur: ~ okt. 2026

Ný­sköp­un­ar­styrk­ur Mosfellsbæjar

Veittur er 1.000.000 kr. styrkur vegna frumlegra hugmynda sem getur gert gott samfélag betra. Skilyrði er að nýsköpunarverkefnið tengist eða gagnist Mosfellsbær á einhvern hátt. Umsóknarfrestur: ~ maí. 2026

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka 🏦

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir frumkvöðla og sprotafyrirtæki sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem bankinn hefur valið að leggja sérstaka áherslu á: menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, nýsköpun og aðgerðir í loftlagsmálum. Umsóknarfrestur: ~ okt. 2026

Jafnréttissjóður Íslands ⚖️

Sjóðurinn sem er á vegum Rannís styrkir verkefni og rannsóknir sem miða að því að stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Umsóknarfrestur: ~ apr. 2026

Styrktarsjóður geðheilbrigðis

Styrktarsjóður geðheilbrigðis veitir styrki til verkefna og rannsókna sem stuðla að nýsköpun og framþróun í geðheilbrigðismálum. Markmið sjóðsins er að bæta geðheilbrigði landsmanna, auka skilning á málaflokknum og styðja við nýjar lausnir sem geta haft jákvæð áhrif á samfélagið. Umsóknarfrestur:…

Samfélagsstyrkur Krónunnar 🌱

Stefna Krónunnar er að styrkja verkefni sem hvetja til hreyfingu og hollustu barna og/eða uppbyggingar í samfélaginu, t.d. á sviði menningar og lista eða menntunar. Umsóknarfrestur: ~ sep. 2026

Borgarsjóður 🏙

Borgarsjóður veitir styrki til félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga til starfsemi og verkefna í samræmi við stefnumörkun og áherslur borgaryfirvalda. Umsóknarfrestur: ~ sep. 2026

Loftslagssjóður ⛅️

Styrkir annars vegar nýsköpunarverkefni sem skila samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar kynningar og fræðsluverkefni sem eru til þess fallin að virkja almenning og atvinnulíf til aðgerða. Umsóknarfrestur: ~ jún. 2026