Skerfur – Máltækni

Skerfur, styrktarsjóður á vegum Almannaróms, úthlutar styrki til verkefna sem styðja við innleiðingu eða þróun hagnýtra endalausna sem byggja á íslenskri máltækni. Umsóknarfrestur: ~ des. 2026

Skerfur, styrktarsjóður á vegum Almannaróms, úthlutar styrki til verkefna sem styðja við innleiðingu eða þróun hagnýtra endalausna sem byggja á íslenskri máltækni. Umsóknarfrestur: ~ des. 2026

Sjóðurinn styrkir almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis og orkumála. Styrkir eru veittir til námsmanna og rannsóknaverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Umsóknarfrestur: ~ jan. 2027

Nýsköpunarsjóður sem styður við frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Áhersla er lögð á verkefni sem taka tillit til sjálfbærni og styðja við innlenda framleiðslu. Umsóknarfrestur: ~ jan. 2027

Tveir styrkjaflokkar, annars vegar námsstyrkir vegna lokaverkefnis og hinsvegar verkefnastykir á sviði orku, auðlinda eða sjálfbærnis. Umsóknarfrestur: ~ jan. 2027

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands veitir styrki sem ætlaðir eru námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi, þar með talið verkefna er tengjast nýsköpun. Verkefnin sem sótt er um þurfa að tengjast Suðurlandi. Umsóknarfrestur: ~ jan. 2027

Samfélagssjóður HS Orku hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa og eru styrkir veittir tvisvar sinnum á ári. Umsóknarfrestur: ~ okt. 2026

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir frumkvöðla og sprotafyrirtæki sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem bankinn hefur valið að leggja sérstaka áherslu á: menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, nýsköpun og aðgerðir í loftlagsmálum. Umsóknarfrestur: ~ okt. 2026

Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en þeir eru ætlaðir konum sem eru að vinna að viðskiptahugmynd eða þróa verkefni. Markmiði er að auka aðgengi frumkvöðlakvenna að fjármagni. Hámarksstyrkur er 4 milljónir og styrkur vegna viðskiptaáætlunar…

Styður við málefni og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins. Umsóknarfrestur: 2026-03-31