Atvinnumál kvenna 🦸‍♀️

Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en þeir eru ætlaðir konum sem eru að vinna að viðskiptahugmynd eða þróa verkefni. Markmiði er að auka aðgengi frumkvöðlakvenna að fjármagni. Hámarksstyrkur er 4 milljónir og styrkur vegna viðskiptaáætlunar…

Samfélagssjóður Landsvirkjunar 🔋

Styður við málefni og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins. Umsóknarfrestur: 2026-03-31

Samfélagssjóður EFLU 👷‍♀️

EFLA veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna, sem nýtast samfélaginu. Markmiðið með styrkjunum er að styðja við framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Umsóknarfrestur: 2026-04-15

Svanni framlengdur

Samþykkt hefur verið að framlengja starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna um fjögur ár eða til ársins 2019. Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur að þessu sinni til 15.mars en sótt er um á nýjum vef verkefnisins. Eingöngu fyrirtæki í…

Landstólpinn: tilnefningar 2026

Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist…

Forvitnir frumkvöðlar fara vel af stað

Fyrsta erindi ársins í fyrirlestraröð landshlutasamtakanna, Forvitnir frumkvöðlar, var haldið þann 6. janúar. Að þessu sinni var erindið sniðið að sérstakri tegund frumkvöðlastarfs þ.e. samfélagslegri nýsköpun og bar það yfirskriftina Þegar íbúar móta framtíðina: samfélagsleg nýsköpun í þágu byggðaþróunar. Af þátttökunni…

Fjármögnun sprotafyrirtækja

Nú er komið að öðrum viðburðinum í ár í fyrirlestraröðinni „Forvitnir frumkvöðlar“ sem landshlutasamtökin standa sameiginlega að. Þriðjudaginn 3. febrúar klukkan 12.00 beinum við sjónum að einu mikilvægasta en jafnframt flóknasta viðfangsefni frumkvöðla: Fjármögnun. Fyrirlesari viðburðarins er Svava Björk Óladóttir,…

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknarsjóð 2026

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. Umsóknarfrestur er…