Styrkir

Viðburðir

Views Navigation

Event Views Navigation

Í dag
  • Matvælasjóður 🌽

    Styrkir þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla lögð á nýsköpun, sjálfbærni og verðmætasköpun. Umsóknarfrestur: 2026-02-27

  • Samfélagssjóður BYKO 🔨

    Samfélagssjóðurinn styður við verkefni sem samræmast stefnu félagsins og heimsmarkmiðum sem félagið starfar eftir. Umsóknarfrestur: 2026-03-01

  • Atvinnumál kvenna 🦸‍♀️

    Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en þeir eru ætlaðir konum sem eru að vinna að viðskiptahugmynd eða þróa verkefni. Markmiði er að auka aðgengi frumkvöðlakvenna að fjármagni. Hámarksstyrkur er 4 milljónir og styrkur vegna viðskiptaáætlunar er 600 þúsund. Aðilar sem fá styrk vegna viðskiptaáætlunar fá aðgang að tveggja vikna hraðli […]

  • Samfélagssjóður Landsvirkjunar 🔋

    Styður við málefni og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins. Umsóknarfrestur: 2026-03-31

  • Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina 👩‍🌾

    Styrkjum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarasvæðisins. Áhersla er á að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem og stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi. Umsóknarfrestur: ~ mar. 2026

  • Samfélagssjóður EFLU 👷‍♀️

    EFLA veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna, sem nýtast samfélaginu. Markmiðið með styrkjunum er að styðja við framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Umsóknarfrestur: 2026-04-15

  • Jafnréttissjóður Íslands ⚖️

    Sjóðurinn sem er á vegum Rannís styrkir verkefni og rannsóknir sem miða að því að stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Umsóknarfrestur: ~ apr. 2026

  • Ný­sköp­un­ar­styrk­ur Mosfellsbæjar

    Veittur er 1.000.000 kr. styrkur vegna frumlegra hugmynda sem getur gert gott samfélag betra. Skilyrði er að nýsköpunarverkefnið tengist eða gagnist Mosfellsbær á einhvern hátt. Umsóknarfrestur: ~ maí. 2026

  • FrumkvöðlaAuður 🦸‍♀️

    Markmið sjóðsins er að hvetja konur til athafna og frumkvæðis og leggur áherslu á frumkvöðlastarf kvenna. Umsóknarfrestur: ~ jún. 2026

  • Loftslagssjóður ⛅️

    Styrkir annars vegar nýsköpunarverkefni sem skila samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar kynningar og fræðsluverkefni sem eru til þess fallin að virkja almenning og atvinnulíf til aðgerða. Umsóknarfrestur: ~ jún. 2026

  • Markaður – Tækniþróunarsjóður ⚙️

    Markaðsstyrkur fyrir lítil og meðalstór sem verja að lágmarki 10% af rekstrargjöldum til rannsókna- eða þróunarstarfs. Hægt að sækja um styrk fyrir markaðsþróun eða markaðssókn. Umsóknarfrestur: 2026-09-15