Opnað hefur verið fyrir umsóknir í spennandi örnámi í frumkvöðlafræði og nýsköpun við Bifröst sem kennt verður á ensku haustið 2026.
Námið hentar einstaklingum sem eiga íslensku ekki sem móðurmál og hafa áhuga á nýsköpun, atvinnusköpun, eigin rekstri og þróun viðskiptahugmynda, sérstaklega þar sem kennslan fer fram í fjarnámi og er aðgengileg fólki um allt land.
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2026.

