Spennandi tímar eru framundan í atvinnulífi Grindavíkur. Undir merkjum verkefnisins Grindavík saman í sókn hefjast skipulegar aðgerðir sem munu styrkja samkeppnisstöðu og sjálfbærni svæðisins til framtíðar. Verkefnið hefst formlega þann 4. júní 2026 og þegar hefur frábær hópur fyrirtækja skráð sig til leiks.
Formlegt félag atvinnurekenda – nú er tækifærið
Eitt af lykilmarkmiðum verkefnisins er að stofna formlegt félag atvinnurekenda í Grindavík. Félagið mun vera vettvangur fyrir sameiginleg hagsmunamál, samstarf og samræmda stefnumótun fyrirtækja á svæðinu auk þess að tryggja að raddir atvinnulífsins heyrist þar sem það skiptir máli.
Þrír verkefnahópar – þín sérþekking á réttum stað
Þátttakendur munu starfa í þremur markvissum verkefnahópum, hvert og eitt með skýrt hlutverk og áhrif:
- Vöruþróun og upplifun – að þróa og efla þá þjónustu og upplifun sem gestir og íbúar fá á svæðinu.
- Samræmd ímynd og markaðssetning svæðisins – að byggja upp sameiginlega sjálfsmynd og samræmdar markaðsaðgerðir.
- Bláa hagkerfið, nýsköpun og hringrásarhagkerfið – að greina og nýta þau tækifæri sem liggja í sjávarútvegi, nýsköpun og sjálfbærni.
Þessi fyrirtæki eru þegar meðal þátttakenda
Eftirfarandi fyrirtæki hafa þegar skráð þátttöku sína og endurspegla þann fjölbreytileika og kraft sem einkennir atvinnulífið í Grindavík:
- Converted Water Tower
- Neskja
- Sæbýli ehf.
- Bláa Lónið
- Fisktækniskóli Íslands
- Design of Iceland ehf.
- Vísir ehf.
- Sólskip ehf.
- Hérastubbur ehf.
- Gistihús Grindavík ehf.
- PGV Framtíðarform ehf.
- VIGT
- Fishhouse
- Discover Grindavík
- 4×4 Fjórhjólaævintýri
Enn er tími til að skrá sig
Þó verkefnið hefjist formlega 4. júní tökum við enn á móti umsóknum frá fyrirtækjum sem vilja vera hluti af þessum hópi. Ef þú tilheyrir atvinnulífi Grindavíkur og vilt stuðla að uppbyggingu og framtíðarsýn svæðisins, þá er þetta þinn vettvangur.
Umsóknarfrestur: 28. maí 2026

