Rannís, Íslandsstofa, Hugverkastofan og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2026 í Grósku þann 29. október kl. 14:00-16:00.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á þinginu.
Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að nýsköpun á landsbyggðinni – tækifærum, áskorunum og þeim fjölbreyttu hugmyndum sem verða að veruleika um allt land.
Á þinginu koma öflug fyrirtæki og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum og segja frá sinni reynslu af því að byggja upp og þróa nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins. Hvað þarf til að góð hugmynd geti vaxið og dafnað á landsbyggðinni? Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?
Með fjölbreyttum erindum og samtali verður leitast við að varpa ljósi á kraftinn í nýsköpun um land allt og þær aðstæður sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun. Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.

