Vel heppnaður lokaviðburður Startup Landið

Vel heppnaður lokaviðburður Startup Landsins á Selfossi

Lokaviðburður Startup Landsins fór fram á Selfossi föstudaginn 6. nóvember og var hluti af dagskrá Uppsprettunnar.

Viðburðurinn var sannkölluð uppskeruhátíð þar sem teymin sem tekið hafa þátt í Startup Landinu stigu á svið og kynntu verkefni sín. Það var einstaklega gaman að sjá þann árangur og þróun sem hefur átt sér stað á meðan á hraðlinum stóð og óhætt er að segja að þátttakendur hafi staðið sig frábærlega.

Startup Landið hefur síðustu vikur verið vettvangur fyrir frumkvöðla víðs vegar að af landinu til að þróa hugmyndir sínar áfram, skerpa á verkefnum sínum, efla færni og byggja upp tengslanet. Fjölbreytileiki verkefnanna endurspeglar vel þann kraft, sköpun og frumkvöðlahugsun sem býr í landshlutunum.

Fjölbreytt verkefni hvaðanæva af landinu

Alls tóku 12 verkefni frá sjö landshlutum þátt og kynntu verkefni sín á lokaviðburðinum:

  • Ullarkögglar (Suðurland)
    Production of organic fertilizer from Icelandic wool that would otherwise be discarded, in the spirit of the circular economy.
    Participant: Alice Sowa.
  • Korngrís Bjór (Suðurland)
    Innovation in brewing aimed at producing beer exclusively from Icelandic barley.
    Participant: Petrína Jónsdóttir.
  • Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes )
    Development of a health and spa experience that promotes well-being and tourism in the region.
    Participant: Unnur Svava Sverrisdóttir.
  • Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir)
    A central digital platform that integrates telehealth and social services from specialists to ensure residents of rural areas have equal access to services.
    Participant: Thóra Kristín Bergsdóttir.
  • Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland)
    Snail farming that opens new, sustainable paths in food and protein production in Iceland.
    Participant: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.
  • Sif’s Hair Atelier (Vesturland)
    Specialized and natural, high-quality hair solutions that boost the confidence of women struggling with hair loss.
    Participant: Laura Martin Merino.
  • Okkar norður ehf. (Norðurland vestra)
    A partnership and marketing model for businesses and organizations that utilizes digital media to enhance the region's visibility.
    Participant: Sigurjón Arthur Friðjónsson.
  • BlómAría (Norðurland vestra)
    An innovative project in local floriculture and design.
    Participant: Anna Sif Ingimarsdóttir.
  • Dálæti (Austurland)
    Design and production of unique Icelandic jewelry and products that evoke nostalgia and joy.
    Participant: Guddis Johannadottir.
  • Fjarðarhjól ehf. (Austurland )
    A bicycle and recreational tour service that utilizes the nature and landscape of the East Fjords.
    Participant: Árni Magnús Magnusson.
  • Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra)
    An organic cafe, workshop, and production kitchen for products from the farm in Svarfaðardalur.
    Participant: Alejandra Gabriela Soto Hernández.
  • AllergyID (Norðurland eystra)
    A technology solution and app that makes it easier for people with food intolerances and allergies to find suitable food and services.
    Participant: Bjarni Thor Eivarsson.

Vegferðin er rétt að byrja

Lokaviðburðurinn markaði lok formlegrar dagskrár Startup Landsins að þessu sinni, en um leið upphaf að næsta kafla hjá þátttakendum og verkefnum þeirra.

Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir samfylgdina, metnaðinn, hugrekkið og kraftinn sem þau hafa lagt í verkefnin sín. Það hefur verið einstaklega gefandi að fylgjast með hugmyndunum þróast og verkefnunum taka framförum.

Horfðu á kynningarnar

Upptaka frá lokaviðburðinum og kynningar þátttakenda eru aðgengileg á YouTube:

Horfa á upptöku frá lokaviðburði Startup Landsins