Nýsköpun og ný tengsl: hringferð um landið

Hringferð KLAK um landið ber yfirskriftina „Nýsköpun & ný tengsl – Hringferð um landið“ og er samstarfsverkefni KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofu, Vísindagarða og Tækniþróunarsjóðs. Markmið ferðarinnar er að kynna stuðningsumhverfi nýsköpunar og styrkja tengslanet frumkvöðla á landsbyggðinni.

Fundurinn verður haldinn á Suðurnesjum þann 13. janúar kl. 10:00 en þar verður jafnframt kynntur stuðningur við nýsköpun í heimabyggð s.s. atvinnuráðgjöf, Startup Landið, Fablab Suðurnes, styrkir og fjármögnun.

Takið daginn frá!