Viðburður

Kynningarfundur Íslandsstofu um íslenskar útflutningsgreinar

26. febrúar 2026 kl. 11:30 - 13:30

Íslandsstofa ferðast um þessar mundir um landið til að kynna endurskoðaða útflutningsstefnu og greina frá aðgerðum og þjónustu Íslandsstofu í þágu útflutnings.

Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- og markaðsráðs endurskoðuð langtímastefna fyrir íslenskan útflutning. Íslandsstofa leiddi vinnu við gerð stefnunnar, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs. Markmið hennar er að stuðla að auknum útflutningstekjum og sjálfbærum hagvexti á Íslandi.

Í febrúar og mars 2026 leggja fulltrúar Íslandsstofu land undir fót, með Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóra Íslandsstofu í fararbroddi, og fara hring um landið til að kynna endurskoðaða stefnu.

Fimmta stopp ferðalagsins er Reykjanesbær þar sem boðið verður til kynningarfundar í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Fundurinn verður haldinn á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ þann 26. febrúar kl. 11.30-13:30. Boðið verður upp á súpu að hætti heimamanna og kaffi.

Skráning á fundinn