Viðburður

Samtal um skapandi greinar

24. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:15

skapandi greinar. Að þessu sinni verða engin formleg erindi eða pallborð. Í staðinn einblínum við alfarið á opið samtal og að skapa rými þar sem þátttakendur geta rætt bæði sín á milli og við okkur. Fundurinn fer fram í CCP í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, kl. 8.30-10.15. 

Tengslanetið í kringum Rannsóknasetur skapandi greina hefur farið ört vaxandi og við viljum nýta tækifærið til að bjóða fólki úr ólíkum áttum skapandi greina að hittast, miðla reynslu og ræða málin saman. Við hvetjum iðkendur, stjórnendur, fræðafólk, stefnumótendur og alla sem hafa áhuga á skapandi greinum til að taka þátt samtalinu. Þátttakendur raða sér við borð þar sem hópstjóri heldur utan um umræður og tekur saman helstu punkta. Við hvetjum fólk til að mæta snemma og næla sér í kaffi og morgunmat í boði CCP. Teams-fundur verður einnig í boði fyrir þau sem ekki komast á staðinn, fjöldi þeirra fer eftir skráningu. Þá fer samtalið fram á ensku á 1-2 borðum (eftir skráningu). 

Saman munum við velta fyrir okkur spurningum um framtíð menningar og skapandi greina: Hvað viljum við styrkja? Hverju þurfum við að breyta? Og hvernig viljum við að íslenskt skapandi landslag þróist á næstu árum? 

Markmið fundarins eru að: 

  • öðlast dýpri innsýn í stöðu og mögulega framtíð skapandi greina á Íslandi 
  • greina spurningar sem vert er að rannsaka, ræða og þróa frekar 
  • skapa opið samtalsrými fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda. 

Þátttakendur geta lagt fram tillögur að umræðuefnum við skráningu. Tillögur að spurningum verða tiltækar við borðin ef þörf krefur en megináherslan er á opið og þátttakendamiðað samtal. Í lok fundar munu hópstjórar fara stuttlega yfir umræður síns borðs og síðan verður opnað fyrir samtal milli borða. Að fundi loknum mun RSSG vinna samanburð út frá borðapunktum og deila samantekt með þátttakendum. 

Dagskrá: 

8:30 Kaffi og spjall, þátttakendur velja sér borð 
8:40 Setning fundar 
8:45 Hópumræður 
9:15 Hópumræður 
9:45 Samantekt 
10:00 Opið samtal milli borða 
10:15 Fundarslit 

Skrá þarf þátttöku á fundinn.