Uppbyggingarsjóður

Markaðsstofa Reykjaness

Reykjanes UNESCO Global Geopark

Nýsköpun

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur það að markmiði að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun á Suðurnesjum með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins.
Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 – 2019, sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa gert með sér og tekur við af Menningarsamningi Suðurnesja og Vaxtarsamningi Suðurnesja. Sjóðurinn styrkir menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, og önnur verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Sjóðurinn auglýsir styrki til umsóknar ár hvert.

  • Fríða Stefánsdóttir, formaður
  • Guðmundur Grétar Karlsson
  • Guðný Kristjánsdóttir
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson
  • Jóhann Friðrik Friðriksson
  • Svavar Grétarsson
  • Elísabet Ásta Eyþórsdóttir

Verkefnastjóri er Björk Guðjónsdóttir og auglýsir sjóðurinn eftir umsóknum einu sinni á ári.

Um sjóðinn
Úthlutanir

Leiðbeiningarmyndband
Kynningarmyndbönd um verkefni sjóðsins

 

Markaðsstofa Reykjaness er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og fyrirtækja á Reykjanesi við að markaðssetja Reykjanesið sem ákjósanlegan áfangastað fyrir ferðamenn. Helsta hlutverk markaðsstofunnar er að samræma markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu á Reykjanesi gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum.

Meðal verkefna sem markaðsstofan sinn er er að þróa og styrkja ímynd Reykjaness sem áhugaverðan áfangastað á Íslandi, vinna með upplýsingamiðstöðvum og gestastofum á svæðinu og samræma upplýsingar sem gefnar eru út. Markaðsstofan aðstoðar hagsmunaaðila við að samræma markaðsaðgerðir og viðburði innan svæðisins, tekur saman rannsóknir á ferðahegðun og markhópagreiningu og stuðlar að nýsköpun í ferðaþjónustunni á svæðinu ásamt því að veita aðstoð og ráðgjöf.

  • Kjartan Már Kjartansson formaður
  • Fannar Jónasson
  • Sigrún Árnadóttir
  • Magnús Stefánsson
  • Ásgeir Eiríksson
  • Guðjón Skúlason
  • Marta Jónsdóttir
  • Brynhildur Kristjánsdóttir

Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með frussandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum.
Norður-Atlandshafshryggurinn rís úr sjó á Reykjanesi og þar er hægt að finna 100 mismunandi gíga, hella, hraunbreiður, kletta og svartar strendur.

Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreifanlegum hætti og á Reykjanesi. Í Reykjanes Geopark er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar er að finna allar ólíkar eldstöðvar m.a. fjögur gosbelti og samanstendur hvert þeirra af hundruðum opinna sprungna, gígaraðir, dyngjur og skjaldlaga bungur.

Reykjanesskaginn er í dag geopark og hluti af verndaráætlun Unesco eða Unesco Global Geopark.

Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Geopark er samstarfsvettvangur sem byggir á því að nýta sérstöðu svæðisins, þ.e. merkilega jarðfræðiarfleið og einstaka jarðsögu, til verðmætasköpunar.

Stjórn Reykjanes Geopark er skipuð sjö einstaklingum og sjö eru skipaðir til vara. Stjórnin er skipuð til eins árs í senn. Þau sveitarfélög sem ekki eiga fulltrúa í stjórn hafa rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.

Hér má sjá fundargerðir stjórnar

STJÓRN REYKJANES GEOPARK 2018-2019

  • Ásgeir Eríksson, formaður (f.h. Sveitarfélagsins Voga)
  • Magnús Stefánsson (f.h. Suðurnesjabæjar)
  • Sigurgestur Guðlaugsson (f.h. Reykjanesbæjar)
  • Fannar Jónasson, formaður (f.h. Grindavíkurbæjar)
  • Berglind Kristinsdóttir (f.h. Heklunnar – Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja)
  • Kristín Vala Matthíasdóttir (f.h. HS Orku)
  • Árni Sigfússon (f.h. Bláa Lónsins)

Í varastjórn eiga sæti:

  • Kjartan Már Kjartansson (f.h. Reykjanesbæjar)
  • Jón Þórisson (f.h. Grindavíkurbæjar)
  • Bergur Álfþórsson (f.h. Sveitarfélagsins Voga)
  • Rakel Ósk Eckard (f.h. sameinaðs sveitarfélags Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs)
  • Hanna María Kristjánsdóttir (f.h. Þekkingarseturs Suðurnesja)
  • Sindri Gíslason (f.h. Þekkingarseturs Suðurnesja)
  • Sigrún Elefsen (f.h. Ferðamálasamtaka Reykjaness)

Reykjanesskaginn er ungur hluti Íslands. Reykjanes Geopark er 829 km2. Hann er þurrlendishluti Mið- Atlantshafshryggjarnins, mjög eldvirkur eins og neðansjávarhlutinn. Út frá honum rekur tvær jarðskorpuplötur (-fleka) í gagnstæðar áttir, að meðaltali 2,0-2,5 cm á ári.

Á skaganum er að finna mörg móbergsfjöll og -fell frá jökulskeiðum á síðari hluta kvarteru ísaldarinnar, og enn fremur hraun og eldstöðvar af hlýskeiðum, einkum nútíma (sl. 11.500 ár).

Verkefnastjóri er Daníel Einarsson

Við styðjum bæði við ný sprotafyrirtæki sem og fyrirtæki í nýsköpun.

Stuðningur við frumkvöðla felst m.a. í leigu á aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eldey en einnig er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og námskeið.
Ráðgjafar Heklunnar veita aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, markaðsáætlana og veita viðtöl og ráðgjöf til þess að fylgja nýsköpunarverkefnum eftir.

Boðið er upp á námskeið og fyrirlestra fyrir frumkvöðla.

Hægt er að panta viðtal hér.

Verkfærakista frumkvöðulsins

https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/verkfaerakista-frumkvodulsins

Fjárfestakynningar

How To Create A Great Investor Pitch Deck For Startups Seeking Financing: https://www.forbes.com/sites/allbusiness/2017/03/04/how-to-create-a-great-investor-pitch-deck-for-startups-seeking-financing/#4ca34c782003

Linkar linkar með mjög góðum sýnidæmum(hægt að fletta glærunum):

30 Legendary Startup Pitch Decks And What You Can Learn From Them: https://piktochart.com/blog/startup-pitch-decks-what-you-can-learn/

35 Best Pitch Decks From 2017 That Investors Are Talking About: https://www.konsus.com/blog/35-best-pitch-deck-examples-2017/

Flott samantekt á lyftukynningu – Make your Pitch Perfect: The Elevator Pitch: https://www.youtube.com/watch?v=bZTWx2bftaw

Gott dæmi um stutta, hnitmiðaða kynningu: https://www.youtube.com/watch?v=i6O98o2FRHw

Lýsið hugmyndinni í 1-2 setningum, – fínt reyna að fylla inn í þetta: http://nmi.is/media/391514/leidarvisir-fyrir-frumkvodla_fillable-form.pdf

Markaðssetning

https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/markadsmal

Frumlegar leiðir til að markaðssetja fyrirtæki

asdf

#

Fréttir

Reykjanes Geopark Project

Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa samþykkt að vinna að stofnun og þróun jarðvangs (e. geopark) á svæðinu. Stefnt er að því að sækja um alþjóðlega vottun á jarðvangnum og því hefur verið sótt um aðild að European Geoparks Network og UNESCO Global Geoparks Network.Verkefnastjóri um stofnun og þróun jarðvangs er Eggert Sólberg Jónsson og er hann með aðsetur hjá Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja í Eldey.
Bundnar eru vonir við að árangur verkefnisins skili sér í fjölgun ferðafólks á svæðinu, eflingu vísindarannsókna, meiri samvinnu og uppbyggingu í ferðaþjónustu og dýpri og aukinni þekkingu á viðfangsefninu jarðvangur.
Hvað er jarðvangur?Jarðvangur er gæðastimpill á svæði sem inniheldur merkilegur eða einstakar jarðminjar og kemur þeim á framfæri. Fyrstu jarðvangarnir í heiminum voru stofnaðir undir lok tíunda áratugarins í Evrópu og Asíu. Fljótlega voru stofnuð samstarfsnet þessara jarðvanga með stuðningi UNESCO. Í dag eru 84 jarðvangar starfandi í heiminum með viðurkenningu frá samstarfsnetinu, þar af 50 í Evrópu.
Jarðvangar eru áhugaverð svæði vegna ýmissa hluta, s.s. rannsókna, fræðslugildis, fjölbreytilegrar náttúru, sjaldgæfra jarðminja o.s.frv. Markmið jarðvanga er að bæta viðhorf og þekkingu á jarðminjum og náttúru, byggja upp jarðfræðiferðamennsku t.d. með uppsetningu fræðsluskilta, bæta merkingar á gönguleiðum, gefa út þjónustu- og/eða gönguleiðakort o.frv. Ekki er þó eingöngu horft á jarðminjar því lögð er áhersla á að koma staðbundinni menningu og hefðum á framfæri, auka úrval matvæla úr héraði í verslunum og á veitingastöðum og koma handverki úr héraði á framfæri svo eitthvað sé nefnt. Jarðvangur byggir á þátttöku heimamanna og hefur skýra stefnu um sjálfbæra þróun.
Horft er á svæðið sem eina heild og leitast við að ferðamaðurinn nái að upplifa söguna, samtímann og hefðbundna menningu, landslag, jarðfræði, matarmenningu, listir og handverk sem og staðbundið gróðurfar og dýralíf. Leitast er við að gera ferðamanninum kleift að upplifa fyrrnefnda þætti í sátt við íbúa svæðisins og áhersla lögð á vellíðan ferðamannanna sem og einnig vellíðan íbúanna.
Hver er ávinningurinn af jarðvangi?Ávinningurinn af stofnun jarðvangs er hvort tveggja samfélags- og efnahagslegur. Stefnt er að því að jarðvangurinn verði lyftistöng fyrir svæði á sviðum ferðamála, framleiðslu og fræðslu. Má þar nefna að áhersla er lögð á nýsköpun og sjálfbæra þróun heima í héraði. Þá styrkist samkeppnishæfni svæðisins með auknu markaðsstarfi, betra aðgengi og öryggi að náttúruperlum, þróun fræðsluefnis, lengingu ferðamannatímans, betra aðgengi að erlendum styrktarsjóðum og aðild að alþjóðlegu neti jarðvanga.
Hver er stærð jarðvangsins?Jarðvangurinn myndi ná yfir allt land sveitarfélaganna á Suðurnesjum, þ.e. Garðs, Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Voga. Samtals yrði hann 829 km2 og ná yfir 0,8% af flatarmáli Íslands.
Af hverju Reykjanes?Reykjanes er tilvalið svæði fyrir jarðvang vegna legu sinnar og áhugaverðra jarðsögu- og menningarminja. Víðtæk áhrif jarðhræringa eru áþreifanleg um nánast allt Reykjanesið með einum eða öðrum hætti. Jarðvangur myndi sýna á fjölbreyttan hátt samspil náttúru og menningar að fornu og nýju og jarðmyndanir með sérstöðu á heimsvísu. Áhersla er lögð á að nýta þá sérstöðu til áframhaldandi þróunar og uppbyggingar á Suðurnesjum.Frekari upplýsingar um verkefnið veitir Eggert Sólberg á netfangið eggert@heklan.is