
Skapandi kraftur á Reykjanesi kynntur á hönnunarmars
Alls tóku 11 hönnuðir af Suðurnesjum þátt í hönnunarmars 2015 undir yfirskriftinni “Upplifðu sköpunarkraftinn á Reykjanesi” Sýningin var samstarfsverkefni Maris...
Lesa meiraUppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur það að markmiði að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun á Suðurnesjum með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins.
Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 – 2019, sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa gert með sér og tekur við af Menningarsamningi Suðurnesja og Vaxtarsamningi Suðurnesja. Sjóðurinn styrkir menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, og önnur verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Sjóðurinn auglýsir styrki til umsóknar ár hvert.
Verkefnastjóri er Björk Guðjónsdóttir og auglýsir sjóðurinn eftir umsóknum einu sinni á ári.
Leiðbeiningarmyndband
Kynningarmyndbönd um verkefni sjóðsins
Markaðsstofa Reykjaness er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og fyrirtækja á Reykjanesi við að markaðssetja Reykjanesið sem ákjósanlegan áfangastað fyrir ferðamenn. Helsta hlutverk markaðsstofunnar er að samræma markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu á Reykjanesi gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum.
Meðal verkefna sem markaðsstofan sinn er er að þróa og styrkja ímynd Reykjaness sem áhugaverðan áfangastað á Íslandi, vinna með upplýsingamiðstöðvum og gestastofum á svæðinu og samræma upplýsingar sem gefnar eru út. Markaðsstofan aðstoðar hagsmunaaðila við að samræma markaðsaðgerðir og viðburði innan svæðisins, tekur saman rannsóknir á ferðahegðun og markhópagreiningu og stuðlar að nýsköpun í ferðaþjónustunni á svæðinu ásamt því að veita aðstoð og ráðgjöf.
Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með frussandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum.
Norður-Atlandshafshryggurinn rís úr sjó á Reykjanesi og þar er hægt að finna 100 mismunandi gíga, hella, hraunbreiður, kletta og svartar strendur.
Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreifanlegum hætti og á Reykjanesi. Í Reykjanes Geopark er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar er að finna allar ólíkar eldstöðvar m.a. fjögur gosbelti og samanstendur hvert þeirra af hundruðum opinna sprungna, gígaraðir, dyngjur og skjaldlaga bungur.
Reykjanesskaginn er í dag geopark og hluti af verndaráætlun Unesco eða Unesco Global Geopark.
Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Geopark er samstarfsvettvangur sem byggir á því að nýta sérstöðu svæðisins, þ.e. merkilega jarðfræðiarfleið og einstaka jarðsögu, til verðmætasköpunar.
Stjórn Reykjanes Geopark er skipuð sjö einstaklingum og sjö eru skipaðir til vara. Stjórnin er skipuð til eins árs í senn. Þau sveitarfélög sem ekki eiga fulltrúa í stjórn hafa rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.
Hér má sjá fundargerðir stjórnar
STJÓRN REYKJANES GEOPARK 2018-2019
Í varastjórn eiga sæti:
Reykjanesskaginn er ungur hluti Íslands. Reykjanes Geopark er 829 km2. Hann er þurrlendishluti Mið- Atlantshafshryggjarnins, mjög eldvirkur eins og neðansjávarhlutinn. Út frá honum rekur tvær jarðskorpuplötur (-fleka) í gagnstæðar áttir, að meðaltali 2,0-2,5 cm á ári.
Á skaganum er að finna mörg móbergsfjöll og -fell frá jökulskeiðum á síðari hluta kvarteru ísaldarinnar, og enn fremur hraun og eldstöðvar af hlýskeiðum, einkum nútíma (sl. 11.500 ár).
Verkefnastjóri er Daníel Einarsson
Við styðjum bæði við ný sprotafyrirtæki sem og fyrirtæki í nýsköpun.
Stuðningur við frumkvöðla felst m.a. í leigu á aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eldey en einnig er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og námskeið.
Ráðgjafar Heklunnar veita aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, markaðsáætlana og veita viðtöl og ráðgjöf til þess að fylgja nýsköpunarverkefnum eftir.
Boðið er upp á námskeið og fyrirlestra fyrir frumkvöðla.
Hægt er að panta viðtal hér.
https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/verkfaerakista-frumkvodulsins
How To Create A Great Investor Pitch Deck For Startups Seeking Financing: https://www.forbes.com/sites/allbusiness/2017/03/04/how-to-create-a-great-investor-pitch-deck-for-startups-seeking-financing/#4ca34c782003
Linkar linkar með mjög góðum sýnidæmum(hægt að fletta glærunum):
30 Legendary Startup Pitch Decks And What You Can Learn From Them: https://piktochart.com/blog/startup-pitch-decks-what-you-can-learn/
35 Best Pitch Decks From 2017 That Investors Are Talking About: https://www.konsus.com/blog/35-best-pitch-deck-examples-2017/
Flott samantekt á lyftukynningu – Make your Pitch Perfect: The Elevator Pitch: https://www.youtube.com/watch?v=bZTWx2bftaw
Gott dæmi um stutta, hnitmiðaða kynningu: https://www.youtube.com/watch?v=i6O98o2FRHw
Lýsið hugmyndinni í 1-2 setningum, – fínt reyna að fylla inn í þetta: http://nmi.is/media/391514/leidarvisir-fyrir-frumkvodla_fillable-form.pdf
https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/markadsmal
Frumlegar leiðir til að markaðssetja fyrirtæki
asdf
Alls tóku 11 hönnuðir af Suðurnesjum þátt í hönnunarmars 2015 undir yfirskriftinni “Upplifðu sköpunarkraftinn á Reykjanesi” Sýningin var samstarfsverkefni Maris...
Lesa meiraSamband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér samning um Sóknaráætlun Suðurnesja...
Lesa meiraHeklan býður til fundar um atvinnu- og menntamál í Bergi, Hljómahöll fimmtudaginn 3 desember kl 12:00 undir yfirskriftinni: Hver...
Lesa meiraÍ gær fór fram starfsgreinakynning fyrir nemendur á Suðurnesjum í 9 og 10 bekk Markmið starfskynningarinnar er að efla starfsfræðslu...
Lesa meiraHvað er svona merkilegt við mig er heiti á fyrirlestri HN markaðssamskipta í frumkvöðlasetrinu Eldey sem fjallar um mikilvægi almannatengsla...
Lesa meiraEr Twitter eitthvað fyrir mig? Hvað er Twitter? Hvernig virkar Twitter? Hverjir eru þarna og af hverju? Þóranna Jónsdóttir mun...
Lesa meiraFimmtudaginn 15 janúar kl 830, Merkinesi Hljómahöll, Reykjanesbæ• Radio Iceland, Hilmar Erlendsson kynnir og ræðir nýjan miðil sem er...
Lesa meiraEldey frumvköðlasetur tekur þátt í opnum degi á Ásbrú og verða frumkvöðlar og sprotafyrirtæki með opnar vinnustofur Þannig geta...
Lesa meiraVeist þú hvað þú þarft mikið fjármagn í framtíðinni til að geta lifað óbreyttu lífi þegar þú hættir að...
Lesa meiraNýsköpunarfyrirtækið Graspro sem sérhæfir sig í öllu því sem snýr að viðhaldi grasvalla hefur gert samning við enska knattspyrnusambandið...
Lesa meira