
→
Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt Kallað verður eftir...
Lesa meiraUppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur það að markmiði að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun á Suðurnesjum með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins.
Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 – 2019, sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa gert með sér og tekur við af Menningarsamningi Suðurnesja og Vaxtarsamningi Suðurnesja. Sjóðurinn styrkir menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, og önnur verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Sjóðurinn auglýsir styrki til umsóknar ár hvert.
Verkefnastjóri er Björk Guðjónsdóttir og auglýsir sjóðurinn eftir umsóknum einu sinni á ári.
Leiðbeiningarmyndband
Kynningarmyndbönd um verkefni sjóðsins
Markaðsstofa Reykjaness er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og fyrirtækja á Reykjanesi við að markaðssetja Reykjanesið sem ákjósanlegan áfangastað fyrir ferðamenn. Helsta hlutverk markaðsstofunnar er að samræma markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu á Reykjanesi gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum.
Meðal verkefna sem markaðsstofan sinn er er að þróa og styrkja ímynd Reykjaness sem áhugaverðan áfangastað á Íslandi, vinna með upplýsingamiðstöðvum og gestastofum á svæðinu og samræma upplýsingar sem gefnar eru út. Markaðsstofan aðstoðar hagsmunaaðila við að samræma markaðsaðgerðir og viðburði innan svæðisins, tekur saman rannsóknir á ferðahegðun og markhópagreiningu og stuðlar að nýsköpun í ferðaþjónustunni á svæðinu ásamt því að veita aðstoð og ráðgjöf.
Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með frussandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum.
Norður-Atlandshafshryggurinn rís úr sjó á Reykjanesi og þar er hægt að finna 100 mismunandi gíga, hella, hraunbreiður, kletta og svartar strendur.
Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreifanlegum hætti og á Reykjanesi. Í Reykjanes Geopark er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar er að finna allar ólíkar eldstöðvar m.a. fjögur gosbelti og samanstendur hvert þeirra af hundruðum opinna sprungna, gígaraðir, dyngjur og skjaldlaga bungur.
Reykjanesskaginn er í dag geopark og hluti af verndaráætlun Unesco eða Unesco Global Geopark.
Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Geopark er samstarfsvettvangur sem byggir á því að nýta sérstöðu svæðisins, þ.e. merkilega jarðfræðiarfleið og einstaka jarðsögu, til verðmætasköpunar.
Stjórn Reykjanes Geopark er skipuð sjö einstaklingum og sjö eru skipaðir til vara. Stjórnin er skipuð til eins árs í senn. Þau sveitarfélög sem ekki eiga fulltrúa í stjórn hafa rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.
Hér má sjá fundargerðir stjórnar
STJÓRN REYKJANES GEOPARK 2018-2019
Í varastjórn eiga sæti:
Reykjanesskaginn er ungur hluti Íslands. Reykjanes Geopark er 829 km2. Hann er þurrlendishluti Mið- Atlantshafshryggjarnins, mjög eldvirkur eins og neðansjávarhlutinn. Út frá honum rekur tvær jarðskorpuplötur (-fleka) í gagnstæðar áttir, að meðaltali 2,0-2,5 cm á ári.
Á skaganum er að finna mörg móbergsfjöll og -fell frá jökulskeiðum á síðari hluta kvarteru ísaldarinnar, og enn fremur hraun og eldstöðvar af hlýskeiðum, einkum nútíma (sl. 11.500 ár).
Verkefnastjóri er Daníel Einarsson
Við styðjum bæði við ný sprotafyrirtæki sem og fyrirtæki í nýsköpun.
Stuðningur við frumkvöðla felst m.a. í leigu á aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eldey en einnig er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og námskeið.
Ráðgjafar Heklunnar veita aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, markaðsáætlana og veita viðtöl og ráðgjöf til þess að fylgja nýsköpunarverkefnum eftir.
Boðið er upp á námskeið og fyrirlestra fyrir frumkvöðla.
Hægt er að panta viðtal hér.
https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/verkfaerakista-frumkvodulsins
How To Create A Great Investor Pitch Deck For Startups Seeking Financing: https://www.forbes.com/sites/allbusiness/2017/03/04/how-to-create-a-great-investor-pitch-deck-for-startups-seeking-financing/#4ca34c782003
Linkar linkar með mjög góðum sýnidæmum(hægt að fletta glærunum):
30 Legendary Startup Pitch Decks And What You Can Learn From Them: https://piktochart.com/blog/startup-pitch-decks-what-you-can-learn/
35 Best Pitch Decks From 2017 That Investors Are Talking About: https://www.konsus.com/blog/35-best-pitch-deck-examples-2017/
Flott samantekt á lyftukynningu – Make your Pitch Perfect: The Elevator Pitch: https://www.youtube.com/watch?v=bZTWx2bftaw
Gott dæmi um stutta, hnitmiðaða kynningu: https://www.youtube.com/watch?v=i6O98o2FRHw
Lýsið hugmyndinni í 1-2 setningum, – fínt reyna að fylla inn í þetta: http://nmi.is/media/391514/leidarvisir-fyrir-frumkvodla_fillable-form.pdf
https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/markadsmal
Frumlegar leiðir til að markaðssetja fyrirtæki
asdf
Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt Kallað verður eftir...
Lesa meiraMenningarlandið 2017 – ráðstefnu um barnamenningu, verður haldið í menningarhúsinu Bergi, Dalvík 13 – 14 september 2017 Megintilgangur ráðstefnunnar verður...
Lesa meiraÍmyndarverkefnið Reykjanes – við höfum góða sögu að segja hefur sett af stað myndaleik...
Lesa meiraKrafa um starfsleyfi heilbrigðisnefndar vegna heimagistingar hefur verið felld niður með breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem...
Lesa meiraHlutfall nýbygginga 2009 – 2011 var næst hæst á Suðurnesjum á eftir höfuðborgarsvæðinu en dróst mikið saman 2012 –...
Lesa meiraÁrsfundur Byggðastofnunar var haldinn í félagsheimilinu Miðgarði í Skagafirði þriðjudaginn 25 apríl sl Á fundinum flutti Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri ræðu...
Lesa meiraFramkvæmdir við útsýnispall við Brimketil á Reykjanesi standa enn yfir en stefnt er að því að ljúka þeim í...
Lesa meiraHönnunarsjóður minnir á að enn er opið fyrir umsóknir um styrki Þetta er önnur úthlutun af fjórum í ár,...
Lesa meiraÍslandsstofa, í samstarfi við aðalræðisskrifstofu Íslands í New York skipuleggur ferð fyrir íslenska framleiðendur og útflytjendur á matvælum, einkum...
Lesa meiraFramkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur úthlutað 610 milljónum til uppbyggingar á ferðamannastöðum hringinn í kringum landið og fara um 30 milljónir til...
Lesa meira