Uppbyggingarsjóður

Markaðsstofa Reykjaness

Reykjanes UNESCO Global Geopark

Nýsköpun

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur það að markmiði að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun á Suðurnesjum með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins.
Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 – 2019, sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa gert með sér og tekur við af Menningarsamningi Suðurnesja og Vaxtarsamningi Suðurnesja. Sjóðurinn styrkir menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, og önnur verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Sjóðurinn auglýsir styrki til umsóknar ár hvert.

  • Fríða Stefánsdóttir, formaður
  • Guðmundur Grétar Karlsson
  • Guðný Kristjánsdóttir
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson
  • Jóhann Friðrik Friðriksson
  • Svavar Grétarsson
  • Elísabet Ásta Eyþórsdóttir

Verkefnastjóri er Björk Guðjónsdóttir og auglýsir sjóðurinn eftir umsóknum einu sinni á ári.

Um sjóðinn
Úthlutanir

Leiðbeiningarmyndband
Kynningarmyndbönd um verkefni sjóðsins

 

Markaðsstofa Reykjaness er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og fyrirtækja á Reykjanesi við að markaðssetja Reykjanesið sem ákjósanlegan áfangastað fyrir ferðamenn. Helsta hlutverk markaðsstofunnar er að samræma markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu á Reykjanesi gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum.

Meðal verkefna sem markaðsstofan sinn er er að þróa og styrkja ímynd Reykjaness sem áhugaverðan áfangastað á Íslandi, vinna með upplýsingamiðstöðvum og gestastofum á svæðinu og samræma upplýsingar sem gefnar eru út. Markaðsstofan aðstoðar hagsmunaaðila við að samræma markaðsaðgerðir og viðburði innan svæðisins, tekur saman rannsóknir á ferðahegðun og markhópagreiningu og stuðlar að nýsköpun í ferðaþjónustunni á svæðinu ásamt því að veita aðstoð og ráðgjöf.

  • Kjartan Már Kjartansson formaður
  • Fannar Jónasson
  • Sigrún Árnadóttir
  • Magnús Stefánsson
  • Ásgeir Eiríksson
  • Guðjón Skúlason
  • Marta Jónsdóttir
  • Brynhildur Kristjánsdóttir

Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með frussandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum.
Norður-Atlandshafshryggurinn rís úr sjó á Reykjanesi og þar er hægt að finna 100 mismunandi gíga, hella, hraunbreiður, kletta og svartar strendur.

Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreifanlegum hætti og á Reykjanesi. Í Reykjanes Geopark er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar er að finna allar ólíkar eldstöðvar m.a. fjögur gosbelti og samanstendur hvert þeirra af hundruðum opinna sprungna, gígaraðir, dyngjur og skjaldlaga bungur.

Reykjanesskaginn er í dag geopark og hluti af verndaráætlun Unesco eða Unesco Global Geopark.

Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Geopark er samstarfsvettvangur sem byggir á því að nýta sérstöðu svæðisins, þ.e. merkilega jarðfræðiarfleið og einstaka jarðsögu, til verðmætasköpunar.

Stjórn Reykjanes Geopark er skipuð sjö einstaklingum og sjö eru skipaðir til vara. Stjórnin er skipuð til eins árs í senn. Þau sveitarfélög sem ekki eiga fulltrúa í stjórn hafa rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt.

Hér má sjá fundargerðir stjórnar

STJÓRN REYKJANES GEOPARK 2018-2019

  • Ásgeir Eríksson, formaður (f.h. Sveitarfélagsins Voga)
  • Magnús Stefánsson (f.h. Suðurnesjabæjar)
  • Sigurgestur Guðlaugsson (f.h. Reykjanesbæjar)
  • Fannar Jónasson, formaður (f.h. Grindavíkurbæjar)
  • Berglind Kristinsdóttir (f.h. Heklunnar – Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja)
  • Kristín Vala Matthíasdóttir (f.h. HS Orku)
  • Árni Sigfússon (f.h. Bláa Lónsins)

Í varastjórn eiga sæti:

  • Kjartan Már Kjartansson (f.h. Reykjanesbæjar)
  • Jón Þórisson (f.h. Grindavíkurbæjar)
  • Bergur Álfþórsson (f.h. Sveitarfélagsins Voga)
  • Rakel Ósk Eckard (f.h. sameinaðs sveitarfélags Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs)
  • Hanna María Kristjánsdóttir (f.h. Þekkingarseturs Suðurnesja)
  • Sindri Gíslason (f.h. Þekkingarseturs Suðurnesja)
  • Sigrún Elefsen (f.h. Ferðamálasamtaka Reykjaness)

Reykjanesskaginn er ungur hluti Íslands. Reykjanes Geopark er 829 km2. Hann er þurrlendishluti Mið- Atlantshafshryggjarnins, mjög eldvirkur eins og neðansjávarhlutinn. Út frá honum rekur tvær jarðskorpuplötur (-fleka) í gagnstæðar áttir, að meðaltali 2,0-2,5 cm á ári.

Á skaganum er að finna mörg móbergsfjöll og -fell frá jökulskeiðum á síðari hluta kvarteru ísaldarinnar, og enn fremur hraun og eldstöðvar af hlýskeiðum, einkum nútíma (sl. 11.500 ár).

Verkefnastjóri er Daníel Einarsson

Við styðjum bæði við ný sprotafyrirtæki sem og fyrirtæki í nýsköpun.

Stuðningur við frumkvöðla felst m.a. í leigu á aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eldey en einnig er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og námskeið.
Ráðgjafar Heklunnar veita aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, markaðsáætlana og veita viðtöl og ráðgjöf til þess að fylgja nýsköpunarverkefnum eftir.

Boðið er upp á námskeið og fyrirlestra fyrir frumkvöðla.

Hægt er að panta viðtal hér.

Verkfærakista frumkvöðulsins

https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/verkfaerakista-frumkvodulsins

Fjárfestakynningar

How To Create A Great Investor Pitch Deck For Startups Seeking Financing: https://www.forbes.com/sites/allbusiness/2017/03/04/how-to-create-a-great-investor-pitch-deck-for-startups-seeking-financing/#4ca34c782003

Linkar linkar með mjög góðum sýnidæmum(hægt að fletta glærunum):

30 Legendary Startup Pitch Decks And What You Can Learn From Them: https://piktochart.com/blog/startup-pitch-decks-what-you-can-learn/

35 Best Pitch Decks From 2017 That Investors Are Talking About: https://www.konsus.com/blog/35-best-pitch-deck-examples-2017/

Flott samantekt á lyftukynningu – Make your Pitch Perfect: The Elevator Pitch: https://www.youtube.com/watch?v=bZTWx2bftaw

Gott dæmi um stutta, hnitmiðaða kynningu: https://www.youtube.com/watch?v=i6O98o2FRHw

Lýsið hugmyndinni í 1-2 setningum, – fínt reyna að fylla inn í þetta: http://nmi.is/media/391514/leidarvisir-fyrir-frumkvodla_fillable-form.pdf

Markaðssetning

https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/markadsmal

Frumlegar leiðir til að markaðssetja fyrirtæki

asdf

Meðferð persónuupplýsinga

MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA Á HEKLAN.is

Heklan leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Heklan leitast við að takmarka vinnslu persónuupplýsinga eins og hægt er og safnar ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er.
Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á vegum Heklunnar lýtur lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“).

Heklan gætir þess að sú vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við persónuverndarlög.

Hér að neðan er að finna upplýsingar um söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í gegnum vef Heklunnar. Hér að neðan er einnig að finna upplýsingar um réttindi þín og hvernig þú getur nýtt þau.

I. HVAÐA UPPLÝSINGUM SÖFNUM VIÐ Í GEGNUM VEFINN?

Upplýsingar sem þú lætur okkur í té
Vera má að þú látir okkur í té með beinum eða óbeinum hætti persónuupplýsingar er varða þig, til dæmis þegar þú skráir þig á póstlista, viðburði eða óskar eftir viðtali.

 II. HVAÐ GERUM VIÐ VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Allar þær upplýsingar sem Heklan safnar eru nýttar til þess að veita upplýsingar um atvinnuþróun og nýsköpun á Suðurnesjum. Einungis er safnað þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að auka upplýsingagjöf til íbúa og miðla fræðslu og upplýsingum.

III. MEÐ HVERJUM DEILUM VIÐ UPPLÝSINGUNUM?

Heklan deilir ekki þeim upplýsingum sem skráðar eru.

IV. HVAR GEYMUM VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Heklan geymir þínar persónuupplýsingar með öruggum hætti samkvæmt verklagi sem á við um hverja vinnslu fyrir sig.

  1. HVERSU LENGI GEYMUM VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Það er mismunandi hversu lengi við geymum upplýsingarnar. Heklan fellur undir lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og öll mál sem varðveita skal samkvæmt þeim eru geymd í 30 ár og að því loknu færð til Þjóðskjalasafns Íslands. Þetta á t.d. við um beiðnir um fyrirspurnir á grundvelli upplýsingalaga og fyrirspurnir sem berast gegnum „hafðu samband“ gáttina . Önnur gögn er innihalda persónuupplýsingar eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er og að þeim tíma loknum er þeim eytt í samræmi við verklag Heklunnar þar um.

VI. RÉTTUR ÞINN TIL AÐ FÁ AÐGANG AÐ UPPLÝSINGUNUM, LÁTA LEIÐRÉTTA ÞÆR EÐA EYÐA ÞEIM

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig. Þú getur einnig í einhverjum tilvikum átt rétt á að persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar, framsendar annað eða þeim eytt.

VII. VIÐ NOTUM EFTIRFARANDI FÓTSPOR (E. COOKIES)

Fótspor Nafn Tilgangur
Google Analytics _ga

_gat

_gid

nmstat

Fótspor sem notuð eru til að safna upplýsingum um hvernig vefsíðan er notuð. Við notum upplýsingarnar við skýrslugerð í þeim tilgangi að gera síðuna notendavænni. Fótsporin safna upplýsingunum með dulkóðun, sem dæmi fjöldi notenda síðunnar, hvaðan notendur koma og hvaða síður á vefsíðunni það heimsótti.

Lestu upplýsingar um persónuvernd og utanumhald gagna hjá Google.

 

VIII. HVERNIG GET ÉG STÝRT NOTKUN Á FÓTSPORUM?

Það að leyfa fótspor er ekki alltaf nauðsynlegt fyrir vefsíðuna og grundvallar virkni hennar. Samt sem áður, með því að leyfa þau getum við bætt upplifun þína á síðunni. Þú getur eytt út eða lokað á þessi fótspor, en með því mun ákveðin virkni eða þættir á síðunni ekki virka sem skyldi. Með því að smella á: Ég skil á borðanum sem birtist neðst á síðunni, samþykkir þú notkun fótspora.

Svona stillir þú fótspor á síðunni í mismunandi vöfrum: